SEYLAN KVIKMYNDAGERÐ

 
 

Heimildamyndin ,,Það kom svolítið rafmagn"  segir sögu Bjarna Runólfssonar í Hólmi í Landbroti  og samverkamanna hans og hvernig þeim tókst með einstæðri  elju og þrautseigju að lýsa  upp og verma fjölda  sveitaheimila í öllum landsfjórðungum.   

Bjarni Runólfsson  og fleiri rafstöðvasmiðir í Vestur-Skaftafellssýslu raflýstu tvöhundruð og þrettán sveitaheimili á fimmtíu ára tímabili.  Uppsett afl þessara stöðva var tvö megavött, sem er um fjórðungur þess sem Mjólkárvirkjun í Arnarfirði framleiðir. Bjarni í Hólmi var sjálfmenntaður smiður og rafvirki og hráefnið sem hann notaði í virkjanirnar var fengið úr ströndum á Meðallandssandi.  Meðal nánustu samstarfsmanna Bjarna voru þeir bræður frá Svínadal í Skaftártungu, Sigurjón og Eiríkur Björnssynir.  

Skaftfellingar voru frumkvöðlar í raftækni á Íslandi og fóru í alla landsfjórðunga að koma upp rafstöðvum.  Fjölmargar þessara stöðva ganga enn  svo sem stöðin á Seljalandi í Fljótshverfi, sem reist var af Sigfúsi Vigfússyni á Geirlandi. Í heimildamyndinni ,,Það kom svolítið rafmagn" segir frá  því, þegar rafstöðvarsmiðirnir ,,litu á lækinn´´ eins og þeir orðuðu það af sinni skaftfellsku hógværð og stóðu að lokum uppi með  á þriðja hundrað raflýst sveitaheimili um land allt.   

 

Það kom

svolítið rafmagn

Höfundur handrits og texta:

Finnbogi Hermannsson


Stjórnendur:

Finnbogi Hermannsson

Hjálmtýr Heiðdal


Framleiðslustjórn:

Finnbogi Hermannsson

Hjálmtýr Heiðdal


Kvikmyndataka:

Guðmundur Bjartmarsson

Geir Hólmarsson

Hjálmtýr Heiðdal


Klipping:

Hjálmtýr Heiðdal


Þulir:

Finnbogi Hermannsson

Þorsteinn Helgason


Viðmælendur:

Eiríkur Björnsson

Sigurjóns Björnsson

Helgi Valdimarsson

Þórólfur Árnason


Framleiðsluár: 1999.

Lengd: 30 mínútur.

Styrkt af Menningasjóði útvarpsstöðva, Kvikmyndasjóði, Tal og Landsvirkjun.


Hafðu samband ef þú vilt kaupa myndina eða fá frekari upplýsingarmailto:seylan@seylan.is?subject=The%20Old%20Whetstonemailto:seylan@seylan.is?subject=The%20Old%20Whetstonemailto:seylan@seylan.is?subject=The%20Old%20Whetstonemailto:seylan@seylan.is?subject=email%20subjectshapeimage_3_link_0shapeimage_3_link_1shapeimage_3_link_2