SEYLAN KVIKMYNDAGERÐ

 

Heimildakvikmynd um listamanninn

Sverri Haraldsson.


Sverrir Haraldsson (1930 - 1985) var sérstæður listamaður sem samtíminn átti erfitt með að átta sig á, einnig listfræðingar og gagnrýnendur. Hann var undrabarn á mörgum sviðum og viðurkenndur hæfileikamaður þegar um tvítugt.


Í þessari heimildarmynd eru ævi hans og listferill rakinn og sýndur fjöldi listaverka - málverk, teikningar, útskurðarmyndir, bókakápur o.fl. Gerð er grein fyrir ákveðnum skeiðum og tegundum verka á listferli Sverris: bernskumyndum frá Vestamannaeyjum, fíngerðum “kúbískum” verkum, flatarmyndaskeiðinu, auglýsingavinnu, verkum unnum með málningarsprautu og landslagsmálverkum sem hann vann síðustu tvo áratugi ævinnar.


Víða er leitað fanga til að rekja þennan feril - í umsagnir samferðamanna, ljósmyndir, sjónvarpsviðtöl, fyrirmyndir í náttúrunni o.fl.

Töframaður í listinni

Höfundur og stjórnandi: Þorsteinn Helgason

Kvikmyndataka og klipping: Guðmundur Bjartmarsson

Framleiðandi: Hjálmtýr Heiðdal


Framleiðsluár: 1991


Lengd: 55 mínútur.


Styrkt af Mosfellsbæ og Vestmannaeyjabæ

Hafðu samband ef þú vilt kaupa myndina eða fá frekari upplýsingarmailto:seylan@seylan.is?subject=The%20Old%20Whetstonemailto:seylan@seylan.is?subject=The%20Old%20Whetstonemailto:seylan@seylan.is?subject=The%20Old%20Whetstonemailto:seylan@seylan.is?subject=email%20subjectshapeimage_3_link_0shapeimage_3_link_1shapeimage_3_link_2