Seylan ehf er með aðstöðu í gamla Slippfélagshúsinu við Mýrargötu ásamt 9 öðrum kvikmyndafyrirtækjum. Útsýnið er ekki amalegt, við blasir við Slippurinn, einn af elstu vinnustöðum Reykjavíkur, rúmlega aldargamall. Brátt mun hann heyra sögunni til því hér á þessum stað er áformað að byggja íbúðir ofl.

 

Á valröndinni efst á síðunni getur þú kynnt þér verkefni Seylunnar, bæði þau sem þegar hafa verið framleidd og einnig þau verkefni sem eru á ýmsum stigum framleiðslu eða undirbúnings.


Seylan ehf

Mýrargötu 2-8

101 Reykjavík

Sími 5519898

Farsími 8931015

Síðan uppfærð ágúst 2008

Mynd um sögu Vestur Íslendinga.

Seylan er ásamt kvikmyndagerðinni Víðsýn í samstarfi við Ask og Emblu í Borgarnesi að undirbúa kvikmynd sem fjallar um Íslendinga í Vesturheimi. Kveikja myndarinnar var heimsókn 17 Vestur-Íslendinga frá Kanada sem hingað komu til að kynnast slóðum forfeðra sinna sem yfirgáfu Borgarfjörðinn árið 1900.

Guðrún Jónsdóttir, ættingi Vestur Íslendinganna sem hingað komu, er frumkvöðull verksins og hafa nokkur fyrirtæki og stofnanir Vesturlands styrkt myndgerðina.

Framkvæmdastjóri

Seylunnar ehf er

Hjálmtýr Heiðdal

Seylan er einn af eigendum Skandinavia TV.
Nýrri sjónvarpsstöð var hleypt af stokkunum í Danmörku 1. september s.l. Stöðin er í eigu 125Norrænna kvikmyndafyrirtækja og er Seylan eitt þeirra. Meðal mynda sem voru sýndar á opnunarkvöldinu var Atlantic Jihad framleidd af Seylunni. Sjá nánar á heimasíðu Skandinavia TV.
../Site_9/Atlantic_Jihad.html../Site_9/Atlantic_Jihad.htmlhttp://www.skandinavia.tvhttp://www.skandinavia.tv/shapeimage_2_link_0shapeimage_2_link_1shapeimage_2_link_2

"Never was so much owed by so many to so few"

W. Churchill.

Vestur Íslendingarnir Niel Bardal og Peter Johnson afkomendur Helga Jónssonar sem ásamt Ástu konu sinn hélt til Kanada árið 1900.

Steinþór Birgisson frá Víðsýn skoðar leiði Helga Jónssonar ásamt Peter Johnson

Seylan hefur á samstarfi við kvikmyndagerðina Víðsýn hafið útgáfu á heimildakvikmyndum á DVD diskum. Í fyrstu atrennu verða gefnir út 15 titlar á íslensku og 4 á ensku.

Myndirnar verða til sölu í bókaverslunum um allt land. Einnig í nokkrum söfnum.

Hvað merkir orðið seyla?

Kvikmyndagerðin Seylan ehf var stofnuð árið 1993. Nafn fyrirtækisins er tengt fyrsta verkefni þess, heimildamynd um Tyrkjaránið á Íslandi 1627. Er Tyrkir hugðust leggja til atlögu að Bessastöðum á Álftanesi strandaði eitt skipa þeirra á stað sem heitir Seylan.  Við leituðum að nafni sem væri auðvelt í notkun á flestum tungumálum og hefur þetta nafn staðið undir þeim væntingum.

Skv. orðabók er merking orðsins fremur á neikvæðu nótunum: kelda, mýri, fen og sandkvika.  Eiginlega andstæðan við að “hafa allt sitt á þurru”, þ.e. að vera með t.d. rekstur fyrirtækis í lagi. Seylan ehf er því í raun fyrirtæki á floti, eða úti í (blautri) mýri.

Og er nú staðsett við Mýrargötu!

Þá hlýtur að vakna spurning hjá lesenda hvers vegna í ósköpunum einhver velur að nefna fyrirtæki sitt slíku nafni!  En það er saga á bak við það - smelltu hér og þá færðu svarið sent í tölvupósti.